laugardagur, apríl 17, 2004

I am 35% evil.




I could go either way. I have sinned quite a bit but I still have a bit of room for error. My life is a tug of war between good and evil.



Are you evil? find out at Hilowitz.com

þriðjudagur, apríl 13, 2004

jæja nú eru páskarnir búnir, skólinn að byrja aftur á morgun bara svona til að hætta aftur eftir nokkra daga og þá skella á þessi líka skemmtilegu próf vá ég get ekki beðið eftir að gersamlega rúlla þeim upp......... það er nú í lagi að láta sig dreyma. Ég á nú sennilega ekki eftir að skrifa mikið hér inn fyrr en 15 mai enn þá eru prófin búin ohhhhh mig hlakkar svo til að komast í sumarfrí og byrja að vinna..... bara að vona að maður fái einhverja vinnu!

Ég gleymdi samt alveg að tjá myg um söngkeppni félags framhaldsskóla nema, hvað er að gerast þessi keppni var vægast sagt sú ömurkegasta hingað til t.d hvað var greyið strákurinn frá fas að gera, hver gaf honum leifi til að syngja....arg. svo er ég búin að gleyma þessu öllu saman, sem betur fer, nema auðvita grænmetis gellunum.... ekki vera að semja svona texta takk. það var bara ein sem stóð sig með eindæmum vel og það var hún Silla sæta þetta var stór glæsilegt hjá henni, ekkert stressuð og bara í alla staði glæsilegt.

Svo sá ég að hann Máni var að tala um reiðar konur sem eru að tjá sig á netinu kallandi sig femínista.... vá hvað ég er sammála, hvað er það með alla þessa reiði stelpur er ekki komin tími á að slappa aðeins af og hjálpa sér sjálfur í staðin fyrir að vera alltaf að skíla sér á bakvið það að vera kona. Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir.
Takk fyrir og góðar stundir

sunnudagur, apríl 11, 2004

Gleðilega páska

Vá hvað maður finnur sér ekki til að gera þegar maður á að vera að læra, nú erum við hjónin búin að laga til í kotinu, þvo þvott, vaska upp, tala við helstu fjölskyldu meðlimi, undirbúa kvöldmáltíðina, stúta páskaegginu, og skella nýu lúkki á síðuna. og það allt fyrir kl 4. Þá er kannski best að læra pínu..... humm

Greyið hún litla systir mín búin að vera fárveik í marga daga og liggur nú á sjúkrahúsinu á Norðfirði, með lungnabólgu.
Núna eru líka allir í útlöndum nema ég......uuuhh og nokkrir aðrir. Pabbi og mamma eru í Lúxembúrg, familían hennar Auðar er úti í Grikklandi, og tengdafamiían hennar Þorgerðar er úti í Afríku. svekk, mig langar til útlanda........

föstudagur, apríl 09, 2004

Latte!
Þú ert skapstór og íhaldsamur einstaklingur sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Undir vissum kringumstæðum leyfirðu þér að prófa nýjungar, en þó aðeins að vel athuguðu máli.

Þú samanstendur af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.


Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?


Jahá þar hafið þið það....

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Vá hvað ég á enga vini....... ég kipptist við áðan við það að ég vékk sms...humm frá hverjum gæti þetta verið....jú jú frá besta vini mínum símanum... halló hvað er það með öll þessi essemmess sem maður fær frá þessu blessaða fyrir tæki.
kveðja frá vinalausum aumingja með hor og hausverk

mánudagur, apríl 05, 2004

Símon er lasin með gólftusku um hálsin, situr inn á baðherbergi og grenjar og hugsar um , alla þá sem hafa ekki tusku á hááálsinum. vá hvað þetta er fallega ort....... ekki satt.
enn núna sit ég hér og get ekki annað, komin með hálsbólgu. ekki það skemmtilegasta. Ég var voða ánægð því að Ingó er búin að vera veikur og ég varð ekki veik enn núna er honum batnað og ég orðin veik. satan.....
Annars er ég að rembast við að læra fyrir rekstrarhagfræði próf, en það gengur bara ekki neitt, langar mest til að leggjast bara inn í rúm og kúra mig undir heitri sæng og horfa á friends. ææ aumingja ég......
Enn það gengur ekki að væla því að það er allt of stutt í það að prófin byrji, best að halda áfram.
góðar stundir

miðvikudagur, mars 31, 2004

Fyrir ykkur sem reykja:
Vatnslausn af nikótíni er notað sem skordýra eitur.......

mánudagur, mars 29, 2004

Vandamál dagsins:
Sit hér uppi á Sólborg og er að reyna að lesa fyrir líffræði sem er svo sem ekki til frásögu færandi nema það að við hjónin gerðumst svo kræf að skreppa í nettó til að kaupa okkur e-ð að borða keyptum okkur brauð, skinku og ost. Þegar við komum hingað upp á Sólborg þá skellti ég þessu bara í ísskápinn svo 2 tímum seinna ætluðum við að fara að borða þá var skinkan horfin........ það stal einhver skinkunni...... hver stelur skinku.
Við erum búin að rannsaka málið og þar sem við mættum asískri stelpu á leið út úr mötuneytinu og skinkan var það eina í ísskápnum sem var ekki mjólkurvara þá erum við búin að komast að því að það hafi verið asíska stelpan sem stal skinkunni. En eins og þið eigið að vita þá geta gulir og svartir ekki borðað mjólk þ.e. þeir eru með mjólkur óþol.

Þessi ráðgáta var í boði kjarnafæðis.

svona til að skemmasöguna þá höfum við sennilegast samt gleymt skinkunni í nettó... enn þetta var samt skemmtileg saga.

laugardagur, mars 27, 2004

What will your Funeral be like? by rashock
Username
You will die by:Your mother warned you not to run around with scissors in your hand. You die by some freak accident. Can't really say it was pretty, your Funeral is a closed casket.
Death Date:September 27, 2030
Number attending your funeral?166
How much will you leave to friends and family?$956,012
Created with quill18's MemeGen 3.0!
Your Superhero Persona by couplandesque
Your Name
Superhero NameThe Scotsman
Super PowerSevere Mood Swings
EnemyMichael Jackson
Mode Of TransportationGiant Hamster Named Skippy
WeaponVinyl Records
Created with quill18's MemeGen 3.0!
Who is in your celebrity family? by cerulean_dreams
User Name
MomCher
DadJohnny Depp
BrotherEric Bana
SisterMilla Jovovich
DogShilo
BoyfriendViggo Mortensen
Best friendMilla Jovovich
Created with quill18's MemeGen 3.0!



Jú jú það er ég pro football player..... já já you know me, og með 50.6 millur á ári ég er sátt við það.
Your future occupation by meteoric
Your name
Your future occupationPro Football player
Yearly income$722,790
Hours per week you work31
EducationHigh school graduate
Created with quill18's MemeGen 3.0!



þriðjudagur, mars 23, 2004

Hafið þið tekið eftir öllum bæklingum sem eru að auglýsa fermingartilbot? Hafið þið tekið eftir því að það stendur ekki hvað maður sparar mikið á því að kaupa e-ð sem er á fermingartilboði? Eru þetta nokkuð tilboð? ætli þetta sé ekki bara sama verðið, já eða þá bara hærra verð?
Þetta væri nú gaman að kanna! ekki satt?

mánudagur, mars 22, 2004

Ég hef verið að velta fyrir mér, það eru rosalega margar konur sem ganga alltaf á háum hælum. Afhverju það er ekkert þægilegt að þramma alltaf á svona skóm. Ég fór inn á hárgreiðslustofu hér í bæ um daginn og það rétt fyrir lokunn og þar var ein hárgreiðslukonan var þar á svaka háum hælum, afhverju??? til þess að fæturnir virtust lengri.... hverjum er ekki sama... ekki það að mér sé ekki sama.... enn fyrir mitt leyti ég gæti ekki staðið í þessu !

þriðjudagur, mars 09, 2004

Keli takk fyrir þynnku ráðið, Feeell fine, það virkar.
Það er gata á Eskifirði sem heitir Svínaskálahlíð og svo sem ekkert svo fyndið nafn þannig séð, ég hef kannski bara heyrt svo mörg bjánalegri..... enn hvað um það þá vorum við að tala um eina all brjóstastóra konu, eitt leiddi af öðru og hún Elva fór að velta fyrir sér skálastærðum, já brjóstahaldaraskálastærðum, svo fór hún að telja upp, A,B,C,D,DD,EE og svo koma svínaskálar........................... Jahh okkur fannst þetta í það minnsta býsna fyndið þá.!
Við komumst heil heim þó að á tímabili hefðum við haldið að himnarnir væru að hrynja í hausinn á okkur. já þessi tími á austurlandinu einkenndist af mikilli drykkju. Við þurftum að deyfa okkur fyrir svefninn vegna þess að dýnurnar í kojunum voru svo harðar.... ja við trúðum því allavega.

Það gerðist margt skondið þessa helgina og ég ætlaði að skrifa svo mikið um hana enn núna man ég ekki helminginn, þannig að ég mun bara segja frá því þegar ég man það. OK

þriðjudagur, mars 02, 2004

Mig langar til að óska Önnu Sigrúnu og Sigga til hamingju með Viktor Örn sem fæddist víst 4 febrúar. Vonandi verður allt í lagi með snáðann. Til hamingju.
jæja nú er best að segja eitthvað gáfulegt............................................... uuuhhh já
Ég Ingó, Elva og Siggi (þau eru úr lagadeildinni) erum á leið austur í Egilsstaði á morgun miðvikudag og við munum eyða næstu dögum á héraðinu, förum aftir norður á sunnudaginn, við gerðum okkur lítið fyrir og leigðum sumarbústað. Ég er svona pínu filgifiskur í þessari ferð því að þau þrú eru að vinna svaka ritgerð og verja því mestum tíma á héraðsskjalasafninu til þess að skoða eldgömul alþingistíðindi...... ég er ekki að spauga. Þetta verður því án efa mjög skemmtileg og fróðleg ferð og ég á eftir að verða geðveik, í fyrstalagi að vera með þeim í bíl austur, vera með þeim í sumarbústað (afhverju er þetta orð ekki skrifað sumarbússtaður þ.e. með "ss" hehe vegna þess að það er oft bús við hönd) já og vera svo samferða þeim norður aftur. þau eiga pottþétt ekki eftir að tala um neitt annað.... en það var ég sem bað um að fá að fara með....
Góðar stundir og skrifið nú í gestabókina mína ...pll´´iíís