sunnudagur, ágúst 29, 2004

Mystery
You are Barbamama. You spend most of your time
alone, developing your subtle talents. No onereally knows you.

Which Barbapapa Personality Are You?
brought to you by

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Hvað er það með allt þetta fræga fólk sem er að koma til þessa blessaða lands..... seysey nei.. ég er svo aldeilis hissa.....

laugardagur, ágúst 21, 2004

skellti hér inn tveim linkum.... annar er á hana Drífu Magg, (elskulegan sveitunga minn), vinkonu mína sem snúin er aftur heim í sveitina til að kenna í gamlaskólanum okkar.... gangi þér vel sæta mín.
og svo er hinn linkurinn á hana Kristínu Lindu sem var að vinna með mér á Hótel Eddu í Menntaskólanum á Egilsstöðum... alltaf gaman að sjá hvað hún er að brasa... kiss kiss

fimmtudagur, ágúst 19, 2004

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Pabbi.... hann á afmæli í dag.... Pabbi til hamingju með 55 ára ammlið... kiss kiss

Kolla Linda líka til hamingju með daginn í gær stórt knús frá mér... kiss kiss


Nú ég hef yfir gefið Fljótsdalinn og er nú komin aftur heim á Akureyri, lennti á Akureyri um klukkan hálf ellefu að staðartíma.... ekki það að ég hafi komið með flugvél nei nei, ég fékk að fljóta með honum Tóta, en það er sem sagt fyrverandi vinnuveitandi minn, og flugum við semsagt norður á þessum bíl. Það er fyrst núna sem ég skil afhverju fólk vill eiga jeppa...... þessi bíll er meiriháttar.... mig langar í hann.... vill ekki einhver gefa mér þessar rúmar sex millur.... plís.... úff.

Þegar ég byrjaði að vinna í dalnum þá sagði tengdamamma að ég myndi koma til með að læra svo mikið af því að vinna þarna... og hún átti þá við eldamennsku... og ég var nú ekki neitt voða hrifin af því hvernig hún orðaði þetta... hnuss ég tel mig nú bara vel færa í eldhúsinu... en hún hafði þó rétt fyrir sér með lærdóminn, ég er búin að læra heilmikið á þessu sumri kannski ekki í eldamennsku heldur hef ég lært að þekkja ýmiss takmörk bæði hjá mér og öðrum..... heheh...
ég hef tildæmis lært það að...
...ég get auðveldlega lifað af án sjónvarps.
...ég get auðveldlega lifað án sælgætis og gos.
...félagsskapurinn skiptir öllu máli.
...ég eigi að reyna að vera jákvæðari..... humm hef heyrt þetta nokkuð oft... hehe
...þeimmun meira sem maður lærir þeimmun skrítnari verður maður... takk Jón Smári og Bjarni ;)

já og svo margt fleira....

ég kveð sem sagt Fljótsdalinn með söknuði og langar til að þakka Ellu, Tóta, Jóni Smára, Bjarna, Sebastían, Atla, Önnu Marín, Árna og Auði fyrir frábært sumar.... gaman að fá að kynnast ykkur ;) já og svo auðvita öllum hinum.... hehe

föstudagur, ágúst 06, 2004

Langaði bara að segja ykkur frá því að kokkurinn sem ég vinn hjá er bara snillingur. Maðurinn er hreint út sagt snar geðveikur....................... bara svona að láta ykkur vita.. hehehe

kveðja Sigga sem er sko að skemmta sér í vinnunni... og mér er sko alvara...

laugardagur, júlí 31, 2004

Var að hlusta á rás tvö áðan og þar var verið að tala við einhverja krakka sem voru á Þjóðhátíð í eyjum, sem er svo sem ekki frá sögu færandi nema að þau voru að syngja lag sem Bubbi gerði vinnsælt fyrir nokkru, þar sem þau sungu allt lagið þá fór ég að velta því fyrir mér hvort að Bubbi fengi stef gjöldin.... eða voru nöfn þeirra, sem fluttu lagið, tekin niður og eiga þau þá von á ávísun frá stef ......
Gaman að veðrinu í Fljótsdalnum, sko ég hef mjög oft spjallað við mjög ákveðna fljótsdælinga um veðrið þarna í þessum dal og jú jú þeir halda því statt og stöðugt að þarna sé alltaf gott veður..... humm hvað er gott veður, er það hita talan á hitamælinum ? eða er það sólskinsstundirnar? hve oft og hve mikið rignir já eða rignir ekki......? ég er búin að uppgvöta þetta því veðrið í dag var mjög sérstakt. Það var sólskin, hitinn var sæmilegur (svona 17-20°C) en það var líka mígandi rigning, háfaða rok já og því fylgdi mikill sandur (þ.e. sandrok). þannig að ef maður tekur út örfá atriði þá var gersamlega bongoblíða í dalnum fagra í dag....... er það ekki annars?

laugardagur, júlí 17, 2004

jæja nú er hann Gísli Mar loxins komin í heiminn...... mikið var. Hlakka helling til að sjá snáða, hann verður sjálfsagt jafnmikill snillingur og hún mamma sín, spái að fyrstu orðin verði ekki print hæf hehe. Elsku Hrafndís, til hamingju með að hafa komið honum út, ekkert smá stikki....

sunnudagur, júlí 11, 2004

æði

SSmooth
IImportant
GGraceful
GGood
AAmbivalent
HHealthy
UUnreal
LLucky
DDelightful
AAppreciative

Name / Username:


Name Acronym Generator
From Go-Quiz.com

föstudagur, júlí 09, 2004

jú júætli sé ekki best að skella hér inn einum shortara. Mikið búið að gerast hjá mér síðan 6 júní jaaaa... eða ekki.
Búin að eiga afmæli og það var nú voða voða gaman að eyða enn einum afmælisdeginum við uppvask og skúringar, mæli sko eindregið með því. það hressir bætir kætir...
fór svo heim á Akureyri að kveldi afmælisdagsins, mikið var nú gott að koma heim.. hitti þar rétt á frú sætustu(Auði auðvita), skrapp svo til útlanda(jamm við fórum út í Hrísey) æi þetta er nú kannski ekki ferð sem þarf að segja frá í smáatriðum en þetta var nú bara anskoti skemmtilegt..
þið sem munduð eftir mér á afmælisdaginn ( 25. júní....) Takk kærlega keisskiss... þið hin munið bara eftir mér næst því þá verður sko svaka partý sökum öldrunar.

Þar sem ég er bundin þagnar eið í vinnunni þá get ég ekki sagt ykkur kjaftasögurnar þaðan og þar sem ég er alltaf í vinnunni þá má égí raun ekkert segja.... svekk því það eru sko margar sögurnar sem eru sko alveg blogghæfar hehe. Ég er að vinna í kringum einstaklega mikla snillinga, það þarf sko slatti geðveikt fólk í svona tarna vinnu og fólkið sem vinnur þarna í Fljótsdalnum eru sko snargeðveikt. Við erum sko með heitan pott, og þar sem er heitur pottur geta orðið mjög svo skemmtileg pottaparty,,,, hehehe.


svo allir að muna að óska Auði til hamingju með daginn... þann 11 júlí, já og Víði líka hehe Til hamningju elskurnar...

Hrafndís mín ég skal ekki spyrja heimskulega.... ég er nebblega með fréttaritara á staðnum.. heheh

Þar sem ég er búin að vera að vinna samfleitt í 12 daga og það rúma 14 tíma á dag þá er ég að hugsa um að skella mér út í góða veðrið og njóta samveru stunda með famelíunni...
takk fyirir og góðarstundir

sunnudagur, júní 06, 2004

ætli sé ekki komin tími á nýjan pistil..... humm.. kannski það. ég er semsagt komin austur í sveitasæluna og nú snýst lífið bara um vinnu. er að vinna virka daga og kannski aðrahverja hlgi. ég er að vinna frá klukkan hálf sjö á morgnana til svona tíu á kvöldin. jammz það er nú svolítið langur vinnudagur púff. en ekki er þetta nú skemmtilegasta vinnan humm sko að vaska upp ogskúra allan daginn, hven myndi nú ekki nenna því ég bara spyr. Gaman gaman
Mikið sakna ég þess nú að vera ekki heima á Akureyri....... skrítið að segja það en það er nú barasta satt. Þessir mánuðir verða svo sem fljótir að líða.
æi ég hef ekkert að segja þannig að þetta er nú bara voða leiðinilegt blogg þannig að ég er bara farin að sofa.. Góða nótt... luv jú all

laugardagur, maí 15, 2004

Já ekki byrjaði Eurovision keppnin vel. Það er svo sem ekki frásögu færandi nema að vis hjónin steinsofnuðum og vöknuðum svo bara við gaulið í írska keppandanum jú jú við sváfum af okkur framlag íslendinga þetta árið. Hvað er það mikill skandall.

fimmtudagur, maí 13, 2004

Jæja nú er bara rétt rúmur sólahringur í síðasta próf þessarar annar. Á morgun mun eðlisfræðinni rúllað upp, ekki spurning. Svo verður bara djammað svakalega mikið á morgun og svo verður væntanlega horft á júróvisjon í góðra vina hópi.
en nú er best að fara að læra.......

sunnudagur, maí 09, 2004

meira að segja fræga fólkið bloggar ;)

fimmtudagur, maí 06, 2004

Haldið þið ekki bara að hún Halldóra Sigríður sé ekki bara byrjuð að blogga
Til hamingju með afmælið elsku litla systir mín
kossar og knús, hafðu það voðalega gott í dag... þrátt fyrir það að vera í vinnunni.
vá hún er orðin allt of gömul.... 18 ára.... úfff hvað ég er orðin gömul...... hehe

miðvikudagur, maí 05, 2004

Master!
You are a MASTER of the English language!


While your English is not exactly perfect,
you are still more grammatically correct than
just about every American. Still, there is
always room for improvement...


How grammatically sound are you?
brought to you by Quizilla

mánudagur, maí 03, 2004

Mig langar svona rétt til að minnast á afmælisbörn dagsins.... Þar sem þau eru þrjú og eiga afmæli í dag þann þriðja mai og eru öll þrítug, þar ber fyrst að nefna Kristínu mákonu mína, þá Trausta frænda og síðan en ekki síst hann Jónas Friðrik.... vin minn til margra ára.
Þið öll til hamingju með daginn..

ég var svo viðbjóðslega fyndin áðan.... sendi honum Jónasi skeiti híhíhí... hver sendir einhverjum símskeiti á þrítugsafmælinu... heheh

Svo á morgun þá á hún Ólöf fóstur amma mín afmæli á morgun, 4 mai, þá verður hún 84 ára gömul... best að kíkja í kaffi til hennar á morgun... svona eftir prófið.

Best að halda áfram....
Ella á afmæli þann 5 mai....
og svo aðal konan hún litla systir mín á afmæli þann 6. mai (líka hún Soffía systir hans Bergvins)

Til hamingju allir......

laugardagur, maí 01, 2004

Ég sá restina á popppunkti núna áðan og sá atomstöðina bursta smá strákana úr búdrígindum..... en minn elskulegur Ingólfur Magnússon hvað er það með hárið...... mér þykir nú enn voða voða vænt um þig.... en hvað er það með hárið......