föstudagur, desember 01, 2006

Bara afþví að ég er svo svakalega dugleg var ég að huxa um að skella inn stuttum pistli. ;) Ég vill auðvita byrja á því að óska mákonu minni til hamingju með daginn í gær, Hrefna mín til hamingju með þrír þrír afmælið já og svo vill ég auðvita óska þeim hjónum til hamingju með kúluna. Mikið hlakka ég til að verða föðursystir í annað skipti.
Svo er það auðvita frægi maðurinn hann Magni sem á afmæli í dag, til hamingju með daginn.

Við hjónkornin tilvonandi erum á leiðinni á jólahlaðborð, mikið nenni ég ekki .... það sem ég gerir ekki fyrir kallinn minn ;)

Fékk nett sjokk í gær þegar ég uppgvötaði að það er ekki nema rúmlega mánuður þangað til ég mun flytjast af landi brott í óákveðinn tíma, ekki nema rétt rúmur mánuður eftir og ég sem á eftir að gera svo mikið.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís, það er s.s. stutt í að þú komir til hins fagra DK. Bara gaman að því, hlökkum til að sjá þig. Láttu vita hvenær þegar nær dregur.
Knús til ykkar

Nafnlaus sagði...

Hey gormagrýla. takk fyrir kveðjuna. Alltaf gaman að vita að einhver hugsi til manns. ;) kv. bumbulína. hehe

Nafnlaus sagði...

Já nóg eftir að gera.. t.d. heimsækja okkur Magnús Ara :D
Skilar kannski kveðju frá mér til mágs þíns.. yndislegur tími sem þau eiga í vændum.
Kv. Drífa

Sigga Hulda sagði...

Guðbjörg: já stutt í að ég kíki á ykkur, verst að ég verð á vondum tíma, þú alveg á steypireiðinum... ;)

Hrefna: það var nú lítið ;)

Drífa: heimsæki ykkur bara núna í fríinu, hvar áttu heima???
Já ég mun nú skila kveðju til Fúsa já og kannski líka til Benna ... hehe

Nafnlaus sagði...

Já endilega til Benna líka :) (ég sko fattaði ekki "föðursystir" - ótrúlega stupid :).
ég á heima á Reynivöllum 6 eins og er og er að flytja á næstu dögum... veit ekki alveg hvar ég enda.. bjallaðu bara í mig :D
Drífa