fimmtudagur, september 30, 2004

Skál fyrir píkunum........
nú skal halda á Sprellmót (reyndar er það sko á morgun.... en hlakka hlakka til... )

þriðjudagur, september 28, 2004

Afhverju er alltaf fjallað nákvæmlega um það sama og (oftast) rætt við sama fólkið sama kvöldið í þessum "eftir fréttir" þáttum á bæði stöð tvö og sjónvarpinu?
Hvað er að gerast þarna fyrir austan. Nú er sem sagt verið að kjósa nýja bæjarfulltrúa og guð (eða hver sem ræður þessu öllu saman) hjálpi þeim sem ætla að reyna að búa þarna í þessu nýja sveitarfélagi.. omg. það er ekki einn frambærilegur í framboði og þá er ég sko að meina í öllum þessum fjórum framboðum hvað er að... það þarf sko sannalega að gera eitthvað í þessum málum þegar frambærilegir einstaklingar fást (eða eða eru kannski ekki lengur neinir frambærilegir sem búa þarna) til þess að stjórna þessu blessaða sveitarfélagi. Það er allt á leið til andskotans......... (já eða þess sem ræður í þeirri deild). ef ég hefði einungis þetta fólk og þessa lista þá hefði ég viljað snúa þeim við, næstum óbreitt. Hvað er allt (þessir fáu) hæfa fólkið að gera í botnsætunum??? ég bara spyr.... og ég vill svör. Hvað finnst ykkur um þetta... hvað í andsk... á maður að kjósa... skila auðu.. er það möguleiki. HJÁLP

Efstu sæti eru þannig skipuð:
Á-listi Áhugafólks um sveitarstjórnarmál
1. Guðgeir Þ. Ragnarsson, bóndi, Torfastöðum
2. Sigurður Grétarsson, tæknifræðingur, Fellabæ
3. Gunnar Jónsson, bóndi, Egilsstöðum
4. Guðríður Guðmundsdóttir, öryggisfulltrúi, Fossgerði
5. Soffía Sigurjónsdóttir, húsmóðir, Fellabæ
6. Sigvaldi H. Ragnarsson, bóndi, Hákonarstöðum
7. Kristín Arna Sigurðardóttir, nemi, Fellabæ
8. Jóhann Gísli Jóhannsson, bóndi, Breiðavaði
9. Gylfi Hallgeirsson, húsasmíðameistari, Hallgeirsstöðum
10. Sigurður Aðalsteinsson, leiðsögumaður, Vaðbrekku
11. Jón I. Arngrímsson, rafvirki, Fellabæ

B-listi Framsóknarflokks
1. Björn Ármann Ólafsson, bæjarfulltrúi, Egilsstöðum
2. Þorvaldur P. Hjarðar, vélfræðingur, Fellabæ
3. Anna H. Bragadóttir, skrifstofustjóri, Flúðum
4. Þráinn Sigvaldason, forstöðumaður, Fellabæ
5. Katrín Ásgrímsdóttir, framkvæmdastjóri, Kaldá
6. Gunnhildur Ingvarsd., prentsmiður, Egilsstöðum
7. Páll Sigvaldason, framkvæmdastjóri Fellabæ
8. Unnur Inga Dagsdóttir, rekstrarfræðingur, Egilsstöðum
9. Sigurbjörn Snæþórsson, bóndi, Gilsárteigi
10. Helga E. Erlendsdóttir, kennari, Brúarási
11. Magnús Karlsson, bóndi, Hallbjarnarstöðum 2

D-listi Sjálfstæðisflokks
1. Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri, Egilsstöðum
2. Ágústa Björnsdóttir, skrifstofustjóri, Egilsstöðum
3. Hrafnkell Elísson, framleiðslustjóri, Fellabæ
4. Guðrún R. Einarsdóttir, bóndi, Skjöldólfsstöðum
5. Guðmundur Sveinsson Kröyer, jarðfræðingur, Egilsstöðum
6. Arnór Benediktsson, bóndi, Hvanná
7. Ingibjörg Aðalsteinsdóttir, starfsmaður HSA, Fellabæ
8. Helgi Sigurðsson, tannlæknir, Egilsstöðum
9. Jónas Þór Jóhannsson, sveitarstjóri, Hallgeirsstöðum
10. Þráinn Lárusson, skólastjóri, Fellabæ
11. Þórhallur Borgarsson, smiður, Egilsstöðum

L-listi Héraðslistans
1. Skúli Björnsson, aðstoðarskógarvörður, Hallormsstað
2. Anna Guðný Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur, Fellabæ
3. Ásmundur Þórarinsson, skógarbóndi, Vífilsstöðum
4. Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri, Fellabæ
5. Edda E. Egilsdóttir, skrifstofustjóri, Fellabæ
6. Sigurður Ragnarsson, skrifstofumaður, Egilsstöðum
7. Margrét Árnadóttir, bóndi, Hallfreðarstöðum
8. Þorsteinn Bergsson, bóndi, Unaósi
9. Ruth Magnúsdóttir, kennsluráðgjafi, Egilsstöðum1
10. Þorbjörn Rúnarsson, áfangastjóri, Egilsstöðum
11. Margrét Hákonardóttir, leikskólas
Fór í dag og lét taka úr mér blóðsýni til þess að láta athuga hvort ég gæti gefið blóð, fæ að vita það á fimmtudaginn og ef allt er í lagi þá verður dælt úr mér um 450 ml af blóði. Hér með skora ég áykkur að fara og gefa blóð. Lesið ykkur til um það hér Blóðgjöf er lífgjöf.

föstudagur, september 24, 2004

Það er alltaf hægt að bæta við linkalistann hér er á ferð landnámsmaðurinn Kristján Ketill .

þriðjudagur, september 21, 2004

Nú er ég að vinna í því að taka aðeins til í linka safninu mínu, taka út og bæta við. Bætti við vinkonu minni síðan í grunnskóla sem því miður flutti burtu og ég missti samband við en hitti hana svo hér á Ak. hér er hún Elva Rakel. svo er það systir hennar ásamt fjölskyldu sem búsett er í Danaveldi Dagný og co. Hér er annar danmerkurbúi litla frænka mín hún Mercedes Bóasdóttir. Og svo Tinna Hrönn, já og viddi :S

mánudagur, september 06, 2004

Ef við myndum ímynda okkur að heimurinn væri staður þar sem aðeins væri einn 100 manna bær, þá liti hann þannig út:

Þar væru :

57 Asíubúar
21 Evrópubúi
14 frá Western Hemisphere, both North and South
8 Afríkubúar

52 væru karlmenn
48 væru konur

70 væru ekki-hvítir
30 væru hvítir

30 væru kristinnar trúar
70 annarar trúar

89 væru gagnkynhneigðir
11 væru samkynhneigðir

6 einstaklingar ættu 59% af auðnum - og þeir væru allir frá USA
80 byggju ekki í húsi
70 væru ólæsir
1 væri við dauðans dyr;
1 að fæðast1
já aðeins 1 hefði menntun aðra en grunnskóla
1 ætti tölvu

Þegar litið er á heiminn frá svona samþjöppuðu sjónarhorni verður þörfin fyrir samþykki annara, skilningi og menntun allt í einu sýnilegri.

Og meira að hugsa um:

Ef þú vaknaðir nokkurnveginn heilbrigð/ur í morgun, þá ert þú heppnari en sú milljón manna sem ekki lifa af þessa viku.

Ef þú hefur aldrei upplifað hættuna á stríði, hræðsluna við pyntingar eða sársaukan af hungri, þá ert þú betur sett/ur en 500 milljónir manna í heiminum.

Ef þú getur gengið inn í kirkjuna þína án þess að eiga á hættu að verða handtekin/n, pyntuð/aður eða drepin/n- þá ert þú betur sett/ur en 3 milljarðar manna í heiminum.

Ef þú átt mat í ísskápnum, föt í skápunum, þak yfir höfuðið og stað til að sofa á - þá ert þú ríkari en 75% af heiminum.

Ef þú átt pening í bankanum eða í veskinu - þá ert þú meðal ríkustu 8% í heiminum.Ef foreldrar þínir eru ennþá á lífi og ennþá gift, þá ert þú mjög heppin/n, jafnvel í hinum vestræna heimi.

Ef þú getur lesið þessi skilaboð þá ert þú heppnari en rúmlega 2 milljarðar manna - sem eru alveg ólæsir.

laugardagur, september 04, 2004

Fór ásamt stórskemmtilegum hóp laganema og þeirra prófessorum í hvalaskoðun í gær á þessum bát. Þrátt fyrir það að við hefðum ekki séð einn einasta hval (Bjarki sá aðeins dauðan fisk og marglittu) þá var þetta stór góð skemmtun, takk fyrir það. Áhöfnin í þessari siglingu saman stóð að tveimur starfsmönnum norðursiglingar og ekki var það verra að þetta voru tvær stelpur, svipurinn á Francesco Milazzo (sem er prófisor í lagadeildinni) þegar hann sá að þessar stelpur voru þær sem áttu að vera með okkur í þessari fer var gersamlega óborganlegur maðurinn stóð bara þarna og starði í mjög langan tíma. Gaman að þessu. Enn og aftur takk æðislega.

sunnudagur, ágúst 29, 2004

Mystery
You are Barbamama. You spend most of your time
alone, developing your subtle talents. No onereally knows you.

Which Barbapapa Personality Are You?
brought to you by

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Hvað er það með allt þetta fræga fólk sem er að koma til þessa blessaða lands..... seysey nei.. ég er svo aldeilis hissa.....

laugardagur, ágúst 21, 2004

skellti hér inn tveim linkum.... annar er á hana Drífu Magg, (elskulegan sveitunga minn), vinkonu mína sem snúin er aftur heim í sveitina til að kenna í gamlaskólanum okkar.... gangi þér vel sæta mín.
og svo er hinn linkurinn á hana Kristínu Lindu sem var að vinna með mér á Hótel Eddu í Menntaskólanum á Egilsstöðum... alltaf gaman að sjá hvað hún er að brasa... kiss kiss

fimmtudagur, ágúst 19, 2004

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Pabbi.... hann á afmæli í dag.... Pabbi til hamingju með 55 ára ammlið... kiss kiss

Kolla Linda líka til hamingju með daginn í gær stórt knús frá mér... kiss kiss


Nú ég hef yfir gefið Fljótsdalinn og er nú komin aftur heim á Akureyri, lennti á Akureyri um klukkan hálf ellefu að staðartíma.... ekki það að ég hafi komið með flugvél nei nei, ég fékk að fljóta með honum Tóta, en það er sem sagt fyrverandi vinnuveitandi minn, og flugum við semsagt norður á þessum bíl. Það er fyrst núna sem ég skil afhverju fólk vill eiga jeppa...... þessi bíll er meiriháttar.... mig langar í hann.... vill ekki einhver gefa mér þessar rúmar sex millur.... plís.... úff.

Þegar ég byrjaði að vinna í dalnum þá sagði tengdamamma að ég myndi koma til með að læra svo mikið af því að vinna þarna... og hún átti þá við eldamennsku... og ég var nú ekki neitt voða hrifin af því hvernig hún orðaði þetta... hnuss ég tel mig nú bara vel færa í eldhúsinu... en hún hafði þó rétt fyrir sér með lærdóminn, ég er búin að læra heilmikið á þessu sumri kannski ekki í eldamennsku heldur hef ég lært að þekkja ýmiss takmörk bæði hjá mér og öðrum..... heheh...
ég hef tildæmis lært það að...
...ég get auðveldlega lifað af án sjónvarps.
...ég get auðveldlega lifað án sælgætis og gos.
...félagsskapurinn skiptir öllu máli.
...ég eigi að reyna að vera jákvæðari..... humm hef heyrt þetta nokkuð oft... hehe
...þeimmun meira sem maður lærir þeimmun skrítnari verður maður... takk Jón Smári og Bjarni ;)

já og svo margt fleira....

ég kveð sem sagt Fljótsdalinn með söknuði og langar til að þakka Ellu, Tóta, Jóni Smára, Bjarna, Sebastían, Atla, Önnu Marín, Árna og Auði fyrir frábært sumar.... gaman að fá að kynnast ykkur ;) já og svo auðvita öllum hinum.... hehe

föstudagur, ágúst 06, 2004

Langaði bara að segja ykkur frá því að kokkurinn sem ég vinn hjá er bara snillingur. Maðurinn er hreint út sagt snar geðveikur....................... bara svona að láta ykkur vita.. hehehe

kveðja Sigga sem er sko að skemmta sér í vinnunni... og mér er sko alvara...

laugardagur, júlí 31, 2004

Var að hlusta á rás tvö áðan og þar var verið að tala við einhverja krakka sem voru á Þjóðhátíð í eyjum, sem er svo sem ekki frá sögu færandi nema að þau voru að syngja lag sem Bubbi gerði vinnsælt fyrir nokkru, þar sem þau sungu allt lagið þá fór ég að velta því fyrir mér hvort að Bubbi fengi stef gjöldin.... eða voru nöfn þeirra, sem fluttu lagið, tekin niður og eiga þau þá von á ávísun frá stef ......
Gaman að veðrinu í Fljótsdalnum, sko ég hef mjög oft spjallað við mjög ákveðna fljótsdælinga um veðrið þarna í þessum dal og jú jú þeir halda því statt og stöðugt að þarna sé alltaf gott veður..... humm hvað er gott veður, er það hita talan á hitamælinum ? eða er það sólskinsstundirnar? hve oft og hve mikið rignir já eða rignir ekki......? ég er búin að uppgvöta þetta því veðrið í dag var mjög sérstakt. Það var sólskin, hitinn var sæmilegur (svona 17-20°C) en það var líka mígandi rigning, háfaða rok já og því fylgdi mikill sandur (þ.e. sandrok). þannig að ef maður tekur út örfá atriði þá var gersamlega bongoblíða í dalnum fagra í dag....... er það ekki annars?

laugardagur, júlí 17, 2004

jæja nú er hann Gísli Mar loxins komin í heiminn...... mikið var. Hlakka helling til að sjá snáða, hann verður sjálfsagt jafnmikill snillingur og hún mamma sín, spái að fyrstu orðin verði ekki print hæf hehe. Elsku Hrafndís, til hamingju með að hafa komið honum út, ekkert smá stikki....

sunnudagur, júlí 11, 2004

æði

SSmooth
IImportant
GGraceful
GGood
AAmbivalent
HHealthy
UUnreal
LLucky
DDelightful
AAppreciative

Name / Username:


Name Acronym Generator
From Go-Quiz.com

föstudagur, júlí 09, 2004

jú júætli sé ekki best að skella hér inn einum shortara. Mikið búið að gerast hjá mér síðan 6 júní jaaaa... eða ekki.
Búin að eiga afmæli og það var nú voða voða gaman að eyða enn einum afmælisdeginum við uppvask og skúringar, mæli sko eindregið með því. það hressir bætir kætir...
fór svo heim á Akureyri að kveldi afmælisdagsins, mikið var nú gott að koma heim.. hitti þar rétt á frú sætustu(Auði auðvita), skrapp svo til útlanda(jamm við fórum út í Hrísey) æi þetta er nú kannski ekki ferð sem þarf að segja frá í smáatriðum en þetta var nú bara anskoti skemmtilegt..
þið sem munduð eftir mér á afmælisdaginn ( 25. júní....) Takk kærlega keisskiss... þið hin munið bara eftir mér næst því þá verður sko svaka partý sökum öldrunar.

Þar sem ég er bundin þagnar eið í vinnunni þá get ég ekki sagt ykkur kjaftasögurnar þaðan og þar sem ég er alltaf í vinnunni þá má égí raun ekkert segja.... svekk því það eru sko margar sögurnar sem eru sko alveg blogghæfar hehe. Ég er að vinna í kringum einstaklega mikla snillinga, það þarf sko slatti geðveikt fólk í svona tarna vinnu og fólkið sem vinnur þarna í Fljótsdalnum eru sko snargeðveikt. Við erum sko með heitan pott, og þar sem er heitur pottur geta orðið mjög svo skemmtileg pottaparty,,,, hehehe.


svo allir að muna að óska Auði til hamingju með daginn... þann 11 júlí, já og Víði líka hehe Til hamningju elskurnar...

Hrafndís mín ég skal ekki spyrja heimskulega.... ég er nebblega með fréttaritara á staðnum.. heheh

Þar sem ég er búin að vera að vinna samfleitt í 12 daga og það rúma 14 tíma á dag þá er ég að hugsa um að skella mér út í góða veðrið og njóta samveru stunda með famelíunni...
takk fyirir og góðarstundir

sunnudagur, júní 06, 2004

ætli sé ekki komin tími á nýjan pistil..... humm.. kannski það. ég er semsagt komin austur í sveitasæluna og nú snýst lífið bara um vinnu. er að vinna virka daga og kannski aðrahverja hlgi. ég er að vinna frá klukkan hálf sjö á morgnana til svona tíu á kvöldin. jammz það er nú svolítið langur vinnudagur púff. en ekki er þetta nú skemmtilegasta vinnan humm sko að vaska upp ogskúra allan daginn, hven myndi nú ekki nenna því ég bara spyr. Gaman gaman
Mikið sakna ég þess nú að vera ekki heima á Akureyri....... skrítið að segja það en það er nú barasta satt. Þessir mánuðir verða svo sem fljótir að líða.
æi ég hef ekkert að segja þannig að þetta er nú bara voða leiðinilegt blogg þannig að ég er bara farin að sofa.. Góða nótt... luv jú all